Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 16. desember 2019
Prenta
Gámur fauk.
Nú í óveðrinu í síðustu viku fauk salernisgámur á tjaldstæðinu við Finnbogastaðaskóla, á hliðina. Ekki er vitað um ástand salernanna í gámnum. Lán var að hann fauk ekki lengra þá hefði hann getað lent á húsi Björgunarsveitarinnar Strandasólar.
Salernisaðstaða er í þessum gámi fyrir gesti tjaldstæðisins við Finnbogastaðaskóla.