Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 23. apríl 2015
Prenta
Gleðilegt sumar- Harpa byrjar.
Sumardagurinn fyrsti einnig kallaður Yngismeyjardagur, er fyrsti dagur Hörpu, sem er fyrstur af sex sumarmánuðum í gamla norræna tímatalinu. Sumardaginn fyrsta ber alltaf upp á fimmtudag, á tímabilinu frá 19. til 25 apríl (það er að segja fyrsta fimmtudag eftir 18. Apríl.)
Íslensk þjóðtrú segir að ef sumar og vetur frjósi saman boði það gott sumar, en með því er átt við að hiti fari niður fyrir frostmark aðfararnótt sumardagsins fyrsta. Hér í Árneshreppi frusu saman vetur og sumar. Því ætti sumarið að vera gott samkvæmt gamalli þjóðtrú. Gleðilegt sumar.