Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 22. júní 2010
Prenta
Hátíðarguðsþjónusta í Árneskirkju.
Hátíðarguðsþjónusta verður í Árneskirkju eldri sunnudaginn 27. júní, kl. 14:00.
Þess verður minnst að 100 ár eru frá því að fyrst var leikið á orgel í kirkjunni.
Einnig minnst 160 ára afmælis kirkjunnar.
Séra Sigríður Óladóttir sóknarprestur mun þjóna fyrir altari.
Gunnsteinn Gíslason formaður sóknarnefndar flytur erindi í lok guðsþjónustunnar.
Kaffisamsæti verður í félagsheimilinu að lokinni athöfn.