Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 28. janúar 2014
Prenta
Íslandspóstur hækkaði verð á bréfapósti um áramót.
Ný verðskrá fyrir bréfapóst tók gildi hjá Íslandspósti um áramótin. Póst- og fjarskiptastofnun samþykkti breytinguna en gjaldskráin hefur verið óbreytt frá 1. júlí 2012. Eftirfarandi breytingar urðu á verðskrá Póstsins 1. janúar 2014:
Flokkur |
Fyrir 1. jan. 2014 |
Eftir 1. jan. 2014 |
A póstur |
120 kr. |
130 kr. |
B póstur |
103 kr. |
112 kr. |
AM póstur |
88 kr. |
96 kr. |
BM póstur |
71 kr. |
78 kr. |
Bréf 51-100 g. |
125 kr. |
135 kr. |
Nokkrar ástæður eru fyrir verðskrárbreytingunni: Í fyrsta lagi hefur bréfum fækkað mikið á undanförnum árum. Í öðru lagi almennar verðhækkanir í rekstri fyrirtækins. Í þriðja lagi fjölgun íbúða sem hefur bein áhrif á kostnað dreifikerfis. Í fjórða lagi lagaskylda Íslandspósts um að veita alþjónustu en ekki hafa náðst fram breytingar á henni, sem Íslandspóstur hefur lagt til.
Meira hér. Íslandspóstur hefur svarað bréfi forseta ASÍ sem hann sendi félaginu vegna hækkunar á verðskrá fyrir bréfapóst. Og hér má sjá svar Íslandspósts til ASÍ.