Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 21. desember 2021
Prenta
Líkur á rauðum jólum.
Nokkrar líkur eru á að verði rauð jól hér á Ströndum þessi jólin. Ef auð jörð er gefin upp að morgni jóladags eru talin rauð jól. Það er varla að sjá neina úrkomu í spákortum Veðurstofu Íslands, eins er hjá norsku veðurstofunni. Gæti orðið einhver él á morgun, hiti verður í kringum frostmarkið eða vægt frost. Rauð jól voru hér í Árneshreppi 2005. Þá var suðaustan hvassviðri með hlýindum. Sjá hér