Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 12. nóvember 2014
Prenta
Linda útibústjóri Kaupfélagsins.
Nýr verslunarstjóri Linda Guðmundsdóttir,tók við útibúi Kaupfélags Steingrímsfjarðar á Norðurfirði mánudaginn 21.september. Linda Guðmundsdóttir er frá Finnbogastöðum hér í sveit,en hefur verið á Akureyri síðastliðin tíu ár,og hefur stundað vinnu þar. Eftir að Birna Melsted hætti í lok sumars kom aðili sem ætlaði að taka við og vera í vetur,en hann fór eftir viku. Enn í millitíðinni bjargaði Margrét Jónsdóttir versluninni þar til Linda tók við,eins og hún hefur svo oft gert. Nú eru vonandi vandræðum með útibústjóra í Kaupfélaginu lokið allavega um nokkurn tíma,því Linda reði sig að minnsta í eitt ár.
Linda er einnig tónlistarkennari við Finnbogastaðaskóla í hlutastarfi.