Margrét heiðruð.Lokaniðurstaða frá skákhátíðinni.
Ingólfur Benediktsson í Árnesi og Björn Torfason á Melum unnu verðlaun fyrir bestan árangur heimamanna. Keppendur í Trékyllisvík voru alls 43, komu úr öllum landsfjórðungum og voru á öllum aldri. Nokkur efnilegustu skákbörn landsins tóku þátt í mótinu, sem og börn úr sveitinni sem öll stóðu sig með miklum sóma.
Margrét Jónsdóttir á Bergistanga var heiðruð sérstaklega á mótinu í Trékyllisvík, en með því vildu skipuleggjendur skákhátíðarinnar sýna heimamönnum þakklæti fyrir gestrisni og góðar móttökur gegnum árin. Margrét, sem fæddist í Stóru-Ávík, hefur búið alla ævi í Árneshreppi og löngum verið skákmönnum og öðrum gestum hjálparhella.
Hátíðin hófst á þjóðhátíðardaginn með fjöltefli Róberts Lagerman í samkomuhúsinu. Meistarinn notaði skákklukku og hafði aðeins 20 mínútur til að tefla 9 skákir. Viðureignin var æsispennandi, en að lokum vann Róbert 8 skákir en gerði jafntefli við Kristján Albertsson á Melum, sem hefur um árabil verið meðal sterkustu skákmanna á Ströndum.
Á föstudagskvöldið var svo tvískákmót í Hótel Djúpavík. Þar voru keppendur tæplega 30, og stóð lið Gunnars Björnssonar forseta Skáksambandsins og Hrafns Jökulssonar uppi sem sigurvegari.
Hátíðinni lauk á sunnudaginn með hraðskákmóti í Kaffi Norðurfirði, sem Litlihjalli segir nánar frá á næstu dögum.
Lokastaðan í Trékyllisvík:
1. sæti: Rúnar Sigurpálsson 8,5 vinning. 2. sæti: Jóhann Hjartarson 8 vinninga. 3.-5. sæti: Björn Ívar Karlsson, Róbert Lagerman, Þorvarður Ólafsson 6,5 vinning. 6.-9. sæti: Guðmundur Gíslason, Eiríkur Björnsson, Stefán Þór Sigurjónsson, Einar Valdimarsson 6 vinninga. 10.-13. sæti: Vigfús Ó. Vigfússon, Jón Kristinn Þorgeirsson, Csaba Daday, Jörundur Þórðarsson 5,5 vinning. 14.-20. sæti: Stefán Bergsson, Hrund Hauksdóttir, Stefán Karlsson, Hjörtur Jóhannson, Jón Birgir Einarsson, Gunnar Björnsson, Heimir Páll Ragnarsson 5 vinninga. 21.-23. sæti: Gunnar Nikulásson, Böðvar Böðvarsson, Óskar Long Einarsson 4,5 vinninga. 24.-32. sæti: Magnús Gíslason, Veronika Steinunn Magnúsdóttir, Haukur Halldórsson, Guðmundur V. Guðmundsson, Þorgeir Smári Jónsson, Björn Torfason, Ingólfur Benediktsson, Donika Kolica, Skarphéðinn Jónsson 4 vinninga. 33.-34. sæti: Gauti Páll Jónsson, Birkir Karl Einarsson 3,5 vinning 35.-40. sæti: Kristján Albertsson, Númi Ingólfsson, Guðmundur R. Guðmundsson , Kristján Ingi Svafarsson, Haukur Eiríksson, Sigurlaug Jóhannsdóttir 3 vinninga. 41. sæti: Ásta Þorbjörg Ingólfssdóttir 2,5 vinning. 42.-43. sæti: Kári Ingvarsson, Karitas Gyða Sigurðardóttir 2 vinninga.