Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 15. október 2014
Prenta
Rafmagn tekið af kl.13.00.
Enn og aftur þarf Orkubú Vestfjarða á Hólmavík að taka rafmagnið af í Árneshrepp. Nú er það vegna þess að nýji jarðstrengurinn sem lagður var í sumar verður tengdur og formlega tekin í notkun. Straumlaust verður í Árneshreppi vegna þessa frá klukkan eitt (13:00) eftir hádegi til klukkan þrjú (15:00). Eins má búast við einhverju blikki meðan á stillingum stendur.