Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 3. janúar 2014
Prenta
Rafmagnið farið aftur.
Þá fór rafmagnið aftur af í Árneshreppi um klukkan 08:43 í morgun. Ekki er vitað um ástæðu,en Orkubúsmenn á Hólmavík eru að athuga með aðstæður að komast upp á Trékyllisheiði á sérbúnum bíl,en snarvitlaust veður er á heiðinni. Reyknað er með að lína nái jörð þar sem bráðabirgða viðgerðin fór fram á gamlárskvöld. Eins og meðfylgjandi mynd sýnir er línan lág þar.