Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 29. desember 2014
Prenta
Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða.
Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða 2014. Alls bárust 58 umsóknir og að þessu sinni voru veittir 19 styrkir að fjárhæð 3,5 Mkr. Formleg afhending styrkjanna verður í húsnæði OV að Stakkanesi Ísafirði, að Eyrargötu Patreksfirði og að Skeiði 5 Hólmavík þriðjudaginn 6. janúar 2015 kl. 14:00. Meðal styrkþega eru Björgunarsveitin Björg á Drangsnesi, Björgunarsveitin Dagrenning á Hólmavík, Félag um Snjáfjallasetur og Ungmennafélagið Afturelding á Reykhólum. Nánar um úthlutunina er að finna á vef Orkubúsins:
https://www.ov.is/frettir/Samfelagsstyrkir_Orkubus_Vestfjarda_2014/