Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 21. febrúar 2014 Prenta

Samtal um framtíð og samvinnu í markaðssetningu.

Séð yfir Trékyllisvík og til Norðurfjarðar af Reykjaneshyrnu.
Séð yfir Trékyllisvík og til Norðurfjarðar af Reykjaneshyrnu.

Íslandsstofa og Markaðsstofa Vestfjarða boða til samtals aðila í ferðaþjónustu og tengdra hagsmunaaðila. Á fundinum er ætlunin að ræða möguleika á að stilla enn frekar saman strengi í markaðssetningu landshluta og á landsvísu. Hvaða árangri viljum við ná í ferðaþjónustunni í framtíðinni og hvað er árangur í okkar huga? Hvernig getum við unnið betur saman og nýtt okkur þá markaðssetningu sem fer fram?
Á fundinum verða Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður ferðaþjónustu og skapandi greina hjá Íslandsstofu og Díana Jóhannsdóttir, Markaðsstofu Vestfjarða sem mun stýra fundinum.
Fundarstaðir eru:
Tálknarfirði, 25 febrúar, kl: 13-16, Hópinu
Hólmavík, 26. febrúar, kl: 9-12, Café Riis
Ísafjörður, 26. febrúar, kl. 16-19, Hótel Ísafirði

Skráning fer fram hjá Díönu í netfangið: travel@westfjords.is

Athugasemdir

Atburðir

« 2025 »
« Maí »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Úr myndasafni

  • Hilmar og Gunnlaugur.08-11-08.
  • Agnes komin uppundir Hjallskerin í Ávíkinni.
  • Séð til Reykjaneshyrnu og Ávíkurnar.
  • Rafmagnstafla komin upp.12-12-2008.
Vefumsjón