Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 4. september 2015
Prenta
Seinni bifreiðaskoðun á Hólmavík.
Samkvæmt tilkynningu frá Frumherja HF,verður seinni bifreiðaskoðun á Hólmavík dagana 7. og 8. september 2015. Færanlega skoðunarstöðin verður þar stödd þessa daga. Færanlega skoðunarstöðin er nú beintengd við ökutækjaskrá og því hægt að afla allra upplýsinga og ganga frá viðskiptum eins og í fastri skoðunarstöð. Tekið er á móti öllum helstu greiðslukortum (kredit og debet). Símar í skoðunarbílnum eru 570-9214 og 8933900. Einnig er minnt á skoðunarstöð Frumherja í Búðardal. Tímapantanir eru í 570-9090 þjónustuveri Frumherja,og á www.frumherji.is