Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 14. mars 2020 Prenta

Síminn veitir ótakmarkað gagnamagn.

 Ótakmarkað gagnamagn á meðan á samkomubanni stendur hjá Símanum.
Ótakmarkað gagnamagn á meðan á samkomubanni stendur hjá Símanum.

Fréttatilkynning frá Símanum.

Við viljum leggja okkar af mörkum til þess að létta undir á þessum óvissutímum og því ætlum við að veita viðskiptavinum ótakmarkað gagnamagn á meðan á samkomubanni stendur. Þetta á við um Internettengingar heimila, farsímaáskriftir, Krakkakort og Þrennu.

Það er fordæmalaust ástand í þjóðfélaginu og í heiminum öllum. Fjarskipti eru nauðsynleg í slíku ástandi, þau stytta vegalengdir og hjálpa okkur að halda uppi samskiptum okkar á milli. Við hjá Símanum viljum að viðskiptavinir okkar hugsi frekar um eigin hag og heilsu, ættingja sína og vini frekar en innifalið gagnamagn og reikninga.

Við viljum benda á að best er að nýta netspjall á síminn.is eða sjálfsafgreiðslu í gegnum Símaappið og Þjónustuvef þar sem lágmarksmönnun er í verslunum okkar þessa stundina.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Drangar-12-08-2008.
  • Gunnarshús á Eyri-24-07-2004.
  • Elín Agla Briem Skólastjóri frá 2007 til 2010.
  • Flatur ísjaki frekar lár sést frá Litlu-Ávík, er um það bil 5 til 6 Km austur af Sæluskeri Og um 20 Km frá landi. 13-06-2018.
Vefumsjón