Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 20. júní 2012 Prenta

Skákhátíð á Ströndum um helgina.

Til mikils er að vinna á hátíðinni. Sigurvegarar í Trékyllisvík og Norðurfirði fá muni eftir Guðjón Kristinsson frá Dröngum og Valgeir Benediktsson í Árnesi.
Til mikils er að vinna á hátíðinni. Sigurvegarar í Trékyllisvík og Norðurfirði fá muni eftir Guðjón Kristinsson frá Dröngum og Valgeir Benediktsson í Árnesi.
1 af 2

Skákhátíð á  Ströndum 2012 verður haldin nú um helgina og er efnt til fjölteflis á Hólmavík og skákmóta í Djúpavík, Trékyllisvík og Norðurfirði. Von er á stórmeistörunum Helga Ólafssyni, Jóhanni Hjartarsyni og Þresti Þórhallssyni, auk skákáhugamanna víða að. Þá munu mörg af efnilegustu skákbörnum landsins taka þátt í hátíðinni, sem er öllum opin. Fjöldi viðurkenninga og verðlauna eru í boði, m.a. munir eftir tvo af kunnustu handverksmönnum Strandasýslu, flugfarseðlar, sersmíðaðir silfurhringir, silki frá Samarkand, bækur og peningaverðlaun. Hátíðin hefst með fjöltefli á Hólmavík klukkan 16 á föstudaginn, þegar Róbert Lagerman, heiðursgestur hátíðarinnar, teflir fjöltefli. Róbert sem verður fimmtugur nú í sumar er sá skákmeistari sem tekið hefur þátt í flestum skákviðburðum á Ströndum sl. ár. Á föstudagskvöld klukkan 20 verður tvískákarmót í Hótel Djúpavík og á laugardag klukkan 13 hefst afmælis mót Róberts Lagerman í samkomuhúsinu í Trékyllisvík. Heildarverðlaun á mótinu verða rúmlega 100 þúsund krónur, en að auki gefa fjölmörg fyrirtæki og einstaklingar verðlaun. Á sunnudag kl. 13 verður svo hraðskákmót í Kaffi Norðurfirði, sem markar lok Skákhátíðar á Ströndum 2012.

Til mikils er að vinna á hátíðinni. Sigurvegarar í Trékyllisvík og Norðurfirði fá muni eftir Guðjón Kristinsson frá Dröngum og Valgeir Benediktsson í Árnesi. Þá mun sigurvegarinn á Afmælis móti Róberts fá sér smíðaðan silfurhring, smíðaðan af Úlfari Daníelssyni gullsmið. Á hringinn er greypt með rúnaletri kjörorð skákhreyfingarinnar: Við erum ein fjölskylda. Útlit er fyrir góða þátttöku í hátíðinni, sem hefur unnið sér sess sem einhver skemmtilegasti skákviðburður ársins. Ýmsir kunnir skákáhugamenn hafa boðað komu sína, og má nefna Halldór Blöndal fv. forseta Alþingis, Magnús Matthíasson formann Vinafélagsins, Stefán Bergsson framkvæmdastjóra Skákakademíu Reykjavíkur, Ingibjörgu Eddu Birgisdóttur fv. Íslandsmeistara kvenna, Gunnar Finnsson fv. skólastjóra í Trékyllisvík og Gunnar Björnsson forseta Skáksambandsins. Þá munu heimamenn að vanda taka virkan þátt í skákhátíðinni.

Helstu bakhjarlar Skákhátíðar á Ströndum 2012 eru Brim hf. menntamálaráðuneytið, Skáksamband Íslands, Flugfélagið Ernir, Kaupfélag Steingrímsfjarðar, Sögur útgáfa, forlagið, Securitas, Jóhanna Travel o.fl.

Allir eru velkomnir, og verður efnt til ýmissa viðburða fyrir utan skákina, m.a. haldin grillveisla í Trékyllisvík og ,,landsleikur" í fótbolta milli gesta og heimamanna í UMF Leifi heppna. Það er von mótshaldara að sem flestir leggi leið sína á hátíðina um helgina, og komist í snertingu við stórbrotna náttúru og auðugt mannlíf Strandasýslu.

Skákhátíð á Ströndum hefur stofnað Facebook-síðu, en einnig er hægt að skrá sig hjá Hrafni hrafnjokuls@hotmail.com <mailto:hrafnjokuls@hotmail.com>  , Róbert í chesslion@chesslion.com <mailto:chesslion@chesslion.com>  Andreu andreamg@ruv.is <mailto:andreamg@ruv.is> , sem einnig veita frekari upplýsingar um ævintýraferð á Strandir.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Úr myndasafni

  • Finnbogastaðaskóli-19-08-2004.
  • Félagsheimilið í Trékyllisvík:25-04-2009.
  • Margrét Jónsdóttir og Gunnsteinn Gíslason.
  • Gunnsteinn heldur tölu tilkonu sinnar,við undirspil Hilmars.
  • Elísa Ösp Valgeirsdóttir skólastjóri frá 2010 til 2016.
Vefumsjón