Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 29. júlí 2014
Prenta
Skrall fyrir ball.
Á föstudaginn 1. ágúst verður Skrall fyrir ball í Kaffi Norðurfirði eins og um síðustu verslunarmannahelgi. Karl Hallgrímsson úr Blek og Byttum verður með tónleika sem hefjast kl:21.00. Að loknum tónleikunum mun hann spila vinsæl lög af fingrum fram og halda uppi stuði fram á nótt. Aðgangur er aðeins1000 kr. Heimafólk og ferðafólk er hvatt til að mæta. Einnig skal mynt á hinn rómaða mat sem er á boðstólum í Kaffi Norðurfirði,og svo verður barinn að sjálfsögðu opinn. Það er lofað miklu stuði eins og í fyrra,en þá var fullt út að dyrum. Segir í tilkynningu frá vertunum Sveini og Möggu á Kaffi Norðurfirði.