Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 22. desember 2011
Prenta
Fjórðungssamband Vestfirðinga auglýsti eftir umsóknum um rannsóknarstyrk þann 8. ágúst s.l. Styrkurinn var hluti af verkefni ríkisstjórnarinnar um eflingu atvinnu og byggðar á Vestfjörðum í tengslum við fund ríkisstjórnarinnar á Ísafirði þann 5. apríl síðastliðinn, gengið hefur verið frá samkomulagi Fjórðungssambands Vestfirðinga við Mennta- og menningarmálaráðuneytið um ráðstöfun fjárheimilda vegna þessa verkefnis.
Markmið styrksins er að efla samstarf háskóla-, þekkingar- og fræðasetra á Vestfjörðum í gegnum rannsóknir sem og að auka starfsemi og nýjungar á sviði rannsókna. Það verkefni sem varð fyrir valinu er samvinnuverkefni Hafrannsóknastofnunnar á Ísafirði, Háskólaseturs Vestfjarða og Marels og er samstarf um veiðitengda nýsköpun. Markmið verkefnsins er að að þróa nýjar veiðiaðferðir á hörpudiski og öðrum lífverum á botni. Þar sem leitast verður við að auka tæknistig veiðanna, getu til flokkunar og bæta umgengni við umhverfið. Verkefnið mun einnig styrkja stöðu Vestfjarða með tilliti til framtíðarnýtingar auðlinda landshlutans og stuðla að aukinni samkeppnishæfi.
Styrkur til að þróa nýjar veiðiaðferðir á hörpudiski.