Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 12. febrúar 2015
Prenta
Til stendur að halda þorrablót.
Sauðfjárræktarfélagið Von í Árneshreppi ætlar að standa fyrir þorrablóti í félagsheimilinu í Trékyllisvík næstkomandi laugardag 14 febrúar og hefst það klukkan 20:00. Hefðbundinn þorramatur verður á boðstólum. Öllum er frjálst að troða upp og vera með skemmtiatriði. Heyrst hefur að fólk ætli að koma utanað landi á blótið ef veður leifir. Nærsveitungar og aðrir eru velkomnir.