Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 1. september 2011
Prenta
Urðartindur með framkvæmdir.
Arinbjörn Bernharðsson smiður og jarðeigandi sem rekur og er eigandi ferðaþjónustunnar Urðartinds á Norðurfirði heldur áfram framkvæmdum.Nú er hann búin að láta saga úr veggjum á hlöðu fyrir hurðum og gluggum þar sem verða útbúin fjögur mótelherbergi og hvert herbergi með sér snyrtiaðstöðu,sem ætlunin að séu tilbúin í júní næsta sumar.Á jarðhæð á sama húsi var útbúið í fyrra aðstaða fyrir tjald og hjólhýsagesti,með snyrtingum,þar eru einnig borð og stólar með aðstöðu fyrir 80 manns í sæti.Mjög gott og mikið tjaldstæði er þar fyrir utan.Rafmagn er í öllum húsum Urðartindar.
Í fyrra byggði Urðartindur tvö smáhýsi sem hafa verið full bókuð og meira enn það í sumar,einnig hefur tjald og útiaðstaðan verið vinsæl í sumar.Fjögur ættarmót voru haldin þar sem útiaðstaðan og inniaðstaðan var notuð fyrir veisluföng.Að sögn Arinbjörns er hann mjög ánægur með aðsóknina í sumar.