Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 10. apríl 2012
Prenta
Vegur hreinsaður.
Vegagerðin er að moka veginn norður frá Bjarnarfirði og norður í Árneshrepp. Vegurinn lokaðist eða allavega var orðinn mjög þungfær á páskadagskvöld. Margt fólk kom á bílum norður í Árneshrepp um og fyrir páska eins og venjulega. Margir fóru aftur á páskadag því spáð var hreti sem og varð. Enn þeir sem eru enn í hreppnum ættu að komast í dag. Hvasst er en af NA og gengur á með éljum,kólnandi veðri er spáð.