Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 15. nóvember 2012
Prenta
Vestfirskar konur í blíðu og stríðu.
Vestfirskar konur í blíðu og stríðu,3. bók. Finnbogi Hermannsson tók saman. Vestfirskar kjarnakonur á ýmsum tímum. Ævikjör þeirra voru misjöfn en þær áttu það sameiginlegt, að hvika hvergi í lífsbaráttunni hvernig sem örlögin sneru við þeim. Eftirtaldar konur eru söguhetjur hjá Finnboga: Jóhanna Sigrún Ingvarsdóttir frá Lyngholti á Snæfjallaströnd. Ragnheiður Hákonardóttir frá Reykjarfirði. Vilborg Arnarsdóttir í Súðavík. Guðrún Þorbjörg Kristjánsdóttir frá Svínanesseli. Hulda Valdimarsdóttir Ritchie frá Hnífsdal, og Margrét Ryggstein frá Færeyjum. Vestfirska forlagið á Þingeyri gefur út.