Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 28. nóv. til 5.des. 2011.
6 umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Vestfjörðum í liðinni viku.
Þriðjudaginn 29. nóv., varð minniháttar óhapp við Seljalandsveg á Ísafirði, ekki miklar skemmdir á ökutækjum. Miðvikudaginn 30 .nóv., varð minniháttar óhapp á Hólmavík, þar var bakkað utan í bifreið, ekki miklar skemmdir á ökutækjum. Sama dag varð bílvelta á Gemlufallsheiðinni, ekki slys á fólki, en einhverjar skemmdir á ökutæki. Fimmtudaginn 1. des., varð útafakstur á Djúpvegi við Óshlíðargöng, einhverjar skemmdir á ökutæki, en ekki slys á fólki. Sunnudaginn 4. des., urðu tvö óhöpp við Hólmavík, það fyrra varð á Djúpvegi skammt sunnan við Hólmavík, þar hafnaði bifreið á hvolfi út fyrir veg, ökumaður og tveir farþegar hans voru fluttir á Heilsugæslustöðina á Hólmavík til skoðunar, meiðsli reyndust sem betur fer minni háttar. Bifreiðin óökuhæf. Seinna óhappið þann dag varð á brúnni við Broddadalsá, þar hafnaði bifreið á brúarstólpa, bifreiðin óökuhæf, ökumaður og farþegi sluppu án meiðsla.
Talsverður erill var hjá lögreglu vegna skemmtanahalds í umdæminu um liðna helgi, tvær líkamsárásir voru kærðar til lögreglu og er málin í rannsókn, þá var einn ökumaður stöðvaður og grunaður um akstur undir áhrifum lyfja.
Færð á fjallvegum í umdæminu hefur verið erfið á köflum í vikunni og í tvígang hefur þurft að kalla til björgunarsveitir vegfarendum til aðstoðar, í fyrra skiptið mánudaginn 29. nóv., þá fór björgunarsveitin á Barðaströnd suður á Klettsháls til að aðstoða þar ökumann og koma honum til byggða og í seinna skiptið sunnudaginn 4. des., var björgunarsveitin Blakkur á Patreksfirði kölluð út til aðstoðar vegfaranda á Kleifaheiði.
Lögregla vill að gefnu tilefni hvetja ökumenn sem eru á ferðinni um fjallvegi að kynna sér upplýsingar um færð og ástand vegna og veðurspá áður en lagt er í langferð á þessum tíma árs, því færð og veður geta verið fljót að breytast.