Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 5. nóvember 2014
Prenta
Vikan hjá lögreglunni á Vestfjörðum 27.okt til 3.nóv.2014.
Einn ökumaður var kærður fyrir of hraðakstur í liðinni viku, á þjóðvegi nr. 61, Djúpvegi. Föstudaginn 31.okt,var tilkynnt um tvö minni háttar óhöpp,annað innanbæjar á Ísafirði og hitt,erlendir ferðamenn á Steingrímsfjarðarheiði,þar hafnaði bifreið út fyrir veg,ekki skemmdir eða slys á fólki.
Þá varð minni háttar umferðarslys á Skutulsfjarðarbraut laugardaginn 1. nóv., þar hafnaði bifreið á ljósastaur,bifreiðin talsvert skemmd og ökumaður fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið á Ísafirði til skoðunar. Skráningarnúmer tekin af nokkrum bifreiðum vegna vöntunar á aðalskoðun.
Einn ökumaður var stöðvaður vegna gruns um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna.