Vikan hjá lögreglunni á Vestfjörðum 5. til 12.maí 2014.
Fimm ökumenn voru ákærðir fyrir of hraðan akstur í liðinni viku, þrír í nágrenni Ísafjarðar og tveir við Hólmavík. Tveir ökumenn voru kærðir vegna gruns um meintan akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Skemmdarverk voru unnin um liðna helgi á Ísafirði og einnig í Bolungarvík. Á Ísafirði voru brotnar rúður í þrem ökutækjum, í einu ökutæki við Hafnarstræti og tveim ökutækjum við Aðalstræti. Þá voru unnar skemmdir á húsi við Hafnargötu í Bolungarvík. Þá óskar lögregla eftir að ef einhverjir hafa orðið vitni að umræddum skemmdarverkum gefi sig fram við lögreglu í síma 450-3730.
Þá óskar lögreglan eftir vitnum af óhappi sem varð s.l. föstudag um kl. 11:00 eða þar um bil á Skutulsfjarðarbraut við gatnamótin Vestfjarðarvegar nr. 60, þar sem komið er úr átt frá Vestfjarðargögnum. Óhappið var með þeim hætti að ljósri eða grárri fólksbifreið var ekið í veg fyrir bifreið sem ekið var suður Skutulsfjarðarbraut, og þurfti ökumaður þess bíls að nauðhemla til að kom í veg fyrir árekstur og við að nauðhemla kastaðist farþegi í bílnum til og slasaðist og þurfti að gera að meiðslum hans á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði. Talið er að nokkur vitni hafi verið að þessu og óskar lögreglan eftir að þau og ökumaður umræddrar fólksbifreiðar gefi sig fram við lögreglu og í síma 450-3730.