Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 4. desember 2017 Prenta

Aðventuhátíðin á sunnudaginn 10 desember.

Kór Áthagafélags Strandamanna.
Kór Áthagafélags Strandamanna.

Kór Átthagafélags Strandamanna verður með aðventuhátíð í Bústaðakirkju sunnudaginn 10 desember klukkan 16:00. Á hátíðinni mun kórinn flytja vel þekkt og skemmtileg jólalög. Barnakór sem stofnaður var sérstaklega fyrir hátíðina mun einnig syngja nokkur lög. Einsöngvari er hin ástsæla Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú).

Bjarki Sveinbjörnsson flytur hugvekju. Frá því Bjarki Sveinbjörnsson lauk námi í Tónvísindum frá Álaborgarháskóla í Danmörku starfaði hann sem dagskrárgerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu - Rás1 um árabil. Þá tók hann að sér að koma á fót Tónlistarsafni Íslands í Kópavogi, sem nú hefur verið flutt til

Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns. Bjarki hefur kennt íslenska tónlistarsögu um árabil á öllum skólastigum, skrifað fjölda greina um íslenska tónlist og haldið

fyrirlestra bæði vestan hafs og austan. Hann vinnur nú að uppbyggingu Tónlistarsafns Íslands í Þjóðarbókhlöðu.

Í lok Aðventuhátíðarinnar er hið rómaða kaffihlaðborð sem kórfélagar sjá um.

Miðaverð er við innganginn verður 4.500 kr fullorðna en frítt fyrir börn hátíðargesta 14 ára og yngri.

Miðaverð í forsölu verður 3.500 kr sem líkur föstudaginn 8 desember, fólk getur haft samband við Gíslínu í Síma 699-8859. Eða við Ragnheiði í Síma 616-3148.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Hrafn og Úlfar glaðbeittir á svip.08-11-08.
  • Þokuhattur á Reykjaneshyrnu,Mýrarhnjúkur fyrrir miðri mynd.Myndin tekin 14-08-2012.
  • Gjögurviti-byggður 1921 hæð 24 m.-2001.
  • Hilmar og Gulli píparar.08-11-08.
  • Finnbogastaðir brenna,16-06-2008.
Vefumsjón