Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 30. apríl 2014
Prenta
Bifreiðaskoðun á Hólmavík.
Færanlega skoðunarstöð Frumherja hf. verður staðsett á Hólmavík frá mánudeginum 5. maí til föstudagsins 9. maí 2014. Tekið er á móti öllum greiðslukortum(kredit og debet),hvort tveggja er háð því að GSM samband sé í lagi. Mælst er til þess að menn komi með ökutæki með númer sem enda 1 til 7 í fyrri ferð,en í seinni ferð sem ekki er búið að ákveða,með endastafi 8,9,eða 0.
Frumherji hf. vill benda viðskiptavinum sínum á skoðunarstöðina í Búðardal þar sem skoðað er 10 sinnum á ári 2 daga í senn,tímapantanir eru í síma:570-9090.
Sími í færanlegu skoðunarstöð Frumherja er 570-9214.GSM:8933900.