Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 11. október 2011
Prenta
Framkvæmdir við Hólmavíkurhöfn.
Framkvæmdir við Hólmavíkurhöfn ganga vel. Veðrið það sem af er hausti hefur verið framkvæmdunum hliðhollt eins og sjá má á meðfylgjandi mynd sem tekin var í september, og hver dagur dýrmætur. Það er fyrirtækið Ísar ehf. sem sér um að endurnýja stálþil við hafskipabryggjuna og eru áætluð verklok í mars 2012. Í framhaldi af því verður þekjan endurnýjuð.
Þetta kemur fram á vef sveitarfélagsins Strandabyggðar.