Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 26. desember 2010
Prenta
Jólaguðsþjónusta í Árneskirkju.
Jólaguðsþjónusta var í Árneskirkju í dag annan jóladag klukkan tvö.
Prestur var séra Sigríður Óladóttir og orgelleikari var Gunnlaugur Bjarnason, kór Árneskirkju söng. Jólamessan var vel sótt í dag að venju Árneshreppsbúa, þrátt fyrir leiðinda veður,Suðaustan strekking og lemjandi rigningu en mjög hlýtt er miðað við árstíma.