Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 30. apríl 2013
Prenta
Lögreglumessa í Háteigskirkju.
Lögreglumessa verður haldin í Háteigskirkju í Reykjavík á morgun, 1. maí, kl. 11. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir þjónar fyrir altari en ræðumaður verður Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri. Lögreglukórinn syngur undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar en organisti er Kári Allansson. Lögreglukórinn hvetur sérstaklega lögreglumenn, fjölskyldur þeirra og samstarfsfólk í lögreglunni til að fjölmenna og taka þátt í þessum hátíðlega viðburði. Að lokinni messu verður léttur hádegisverður. Segir í fréttatilkynningu frá lögreglunni.