Myndir frá miklum sjógangi í morgun.
Samkvæmt vindmælum á veðurstöðinni í Litlu-Ávík var mesti vindur í gærkveldi og í nótt í jafnavind í um 19 til 22 m/s uppí 25 m/s af Norðnorðaustri.
Sjólag fór að ganga upp strax í gær og í gærdag kl 18:00 var komin mikill sjór,áætluð ölduhæð 4 til 6 m og nú í morgun var hann ekki minni þegar þessar myndir voru teknar um 10:30 fyrir hádegið,en háflæði var kl 11:57.
Myndirnar eru ekki góðar vegna rigningardropanna sem setjast á myndavélina og myndatökumaður hristist í vindi sem var þá um 16 m/s.
Enn myndirnar ættu að skýra sjóganginn sem er og hefur verið,mikill sjór og jafnvel uppí stórsjó þá ölduhæð áætluð 6 til 9 m um tíma.
Oft eykst sjólag þótt dragi úr vindi í talsverðan tíma á eftir.
Tekið skal fram að stórstreymt er núna.Sjór gekk langt uppá gras í mestu fyllingunum.
Allar myndirnar eru teknar frá Litlu-Ávík ofan af fjörukambinum og við Ávíkurána.