Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 5. október 2011
Prenta
Ófært í Árneshrepp.
Ófært er norður í Árneshrepp.
;Að sögn Jóns Harðar Elíassonar rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Hólmavík verður ekki opnað í dag en á morgun verður opnað ef veður leyfir, annars er komin sú regla eins og undanfarna vetur að opnað verður á þriðjudögum og föstudögum segir Jón Hörður! Það er eins gott að opnað verði á morgun því talsverð umferð verður norður á morgun. Flutningabíll Strandafraktar komst ekki norður í dag en kemur á morgun ef fært verður, eins er með bíl frá Sorpsamlagi Strandasýslu sem ætlaði norður í dag.

Einnig ætlar að koma talsvert af fólki frá Isavía.ohf vegna flugslysaæfingarinnar á Gjögurflugvelli sem hefst á föstdaginn, einnig mun koma nýr (notaður) slökkvibíll frá Akureyri á Gjögurflugvöll, en það á að skipta um slökkvibíl á vellinum. Þannig að það verður talsverð umferð ef að líkum lætur um helgina. Annars er veðurspáin þessi fyrir Strandir og Norðurland vestra:NA 10-20 síðdegis, hvassast á Ströndum, en hægari til landsins. Rigning eða súld. Dregur mjög úr vindi og úrkomu í fyrramálið. Hiti 1 til 5 stig.