Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 23. október 2010
Prenta
Ríkisútvarpið með opið hús í dag.
Gestum og gangandi er í dag boðið að koma í Útvarpshúsið í Efstaleiti á Opið hús. Tilefnið er 80 ára afmæli Ríkisútvarpsins.
Starfsmenn hafa verið í óða önn að undirbúa afmælishátíðina og stilla út ýmsum gersemum. Þjóðkunnar brúður, búningar og aðrir leikmunir verða til sýnis, og starfsfólk leiðir gesti um húsið og segir frá því sem fyrir augu ber. Húsið verður opið frá klukkan eitt í dag til hálf fimm.
Segir í frétt frá RÚV.
Fréttasíðan Litlihjalli.is óskar Rúv til hamingju með daginn.