Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 11. júní 2009 Prenta

Strandhögg á laugardag í Árneshreppi.

Á meðal þess sem skoðað verður er Kistan,eða Kistuvogur eins og heimamenn kalla hann,eða þar sem galdrabrennur fóru fram í Trékyllisvík.
Á meðal þess sem skoðað verður er Kistan,eða Kistuvogur eins og heimamenn kalla hann,eða þar sem galdrabrennur fóru fram í Trékyllisvík.

Nú á laugardaginn 13 júní munu þjóðfræðingar og sagnfræðingar vera á ferð um Árneshrepp.
Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er „Strandhögg" en umfjöllunarefnið tengsl Íslands við umheiminn; jaðars og miðju, bæði í staðbundnu samhengi sem alþjóðlegu. Meðal annars verður vikið að blómlegri síðari alda handritamenningu á jaðri Evrópu; iðkun ímynda norðursins á erlendri grundu; iðnaði erlendra þjóða á Íslandi 17. aldar í óþökk konungs; förumönnum og þjóðfræði á mörkum mennskunnar; og framtíð fræða og lista á landsbyggðinni. Auk þess verður sagt frá þjóðfræði og sögu Stranda. Fyrirlestrarnir verða fluttir á hinum ýmsu áföngum ferðarinnar og á málþingi í Bragganum á Hólmavík á sunnudeginum.

Áhugasamir heimamenn eru hvattir til að slást í för og hlýða á og taka þátt í Strandhögginu og er þeim bent á tímaáætlun fyrirlestra á vefsíðu Þjóðfræðistofu www.icef.is. Nánari upplýsingar má einnig fá hjá Kristni Schram í síma 8661940 og dagskráin er hér að neðan.

Dagskráin er í stuttu máli þannig (tímasetningar á laugardegi geta breyst):

Föstudagurinn 12. júní
20:30 Móttaka á Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð.

Kristinn Schram forstöðumaður Þjóðfræðistofu og Arnar S. Jónsson framkvæmdastjóri Sauðfjársetursins bjóða fólk velkomið.

Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur flytur hugvekjuna Krossfesting og upprisa sauðkindarinnar.
Sauðfjársetrið opið. Söngur og gleði.

Laugardagurinn 13. júní
9:00 Lagt af stað úr Steingrímsfirði.

Magnús Rafnsson leiðsegir um Kaldrananeshrepp.

9:30 Selkollusteinn á Bassastaðahálsi - Gunnvör Karlsdóttir íslenskufræðingur heldur erindið Skilaboð Selkollu.
10:15 Klúka - Kotbýli Kuklarans skoðað og sagt frá handritamenningu í Bjarnarfirði.
11:30 Eyjar, fornleifauppgröftur - Magnús Rafnsson sagnfræðingur: Hvalveiðar útlendinga á Ströndum á 17. öld.

Rakel Valgeirsdóttir leiðsegir um Árneshrepp.

13:30 Djúpavík - Sýningar í síldarverksmiðjunni skoðaðar.
14:40 Gjögur - Sigurður Gylfi Magnússon sagnfræðingur flytur fyrirlesturinn: Óvænt endalok. Einsögurannsóknir á Ströndum.
Stóra Ávík - Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur fjallar stuttlega um Jón lærða þar sem hann bjó. Gengið að Kistunni.
Kistan í Trékyllisvík - Sigurður Gylfi Magnússon flytur erindi Más Jónssonar sagnfræðings Hvar var þremur körlum í eldinn kastað haustið 1654?
16.30 Kört - Rakel Valgeirsdóttir þjóðfræðingur heldur erindið Álagablettir í Árneshreppi.

Minja- og handverkshúsið Kört skoðað

18:15 Krossneslaug í Norðurfirði - Sumarliði Ísleifsson ræðir um Hugmyndina um norðrið.

Gleðskapur á Hótel Djúpavík um kvöldið

Sunnudagurinn 14. júní
13:00-15:00 Opin málstofa í Bragganum á Hólmavík um menningararf og jaðarmenningu.

Guðrún Ása Grímsdóttir: Rekastrandir og rétttrúnaður
Andrea Harðardóttir: Vestfirðir á miðöldum - samstarfsverkefni
Jón Jónsson: Á mörkum mennskunnar - förumenn í bændasamfélaginu
Kristinn Schram: Að innbyrða útrásina
Sigurjón Baldur Hafsteinsson: Hnattvæðing að neðan: Hið íslenzka reðasafn og nýfrjálshyggja
Bryndís Björgvinsdóttir: Menningararfur og kapítalismi

Katla Kjartansdóttir þjóðfræðingur stýrir umræðum að erindum loknum.

15.30 Galdrasýning á Ströndum skoðuð.
Áður hefur Litlihjalli fjallað um Strandhöggið á Ströndum í heild.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Grafið fyrir kapli,Orkubúsmenn leggja kapal og tengja ljóastaur.13-11-08.
  • Dregið upp.
  • Afmælisbarnið Margrét Jónsdóttir og Gunnsteinn Gíslason eiginmaður hennar.
  • Séð yfir Ófeigsfjörð-Seljanes-Drangajökull.
  • Frá snjómoksri inn með Reykjarfirði.
Vefumsjón