Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 9. desember 2014
Prenta
Úr dagbók lögreglunnar á Vestfjörðum.
Vikan 1. Desember til 8. Desember 2014: Tveir ökumenn voru stöðvaðir í liðinni viku fyrir of hraðan akstur, annar í Vestfjarðargöngunum og hinn í Bolungarvíkurgöngum, sá sem hraðast ók mældist á 97 km / klst, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 60 km /klst.
Tvö umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni, öll sama daginn. Fyrra óhappið var á Djúpvegi, innan við Hólmavík, þar varð bílvelta ökumaður og farþegi fluttir með sjúkrabíl á heilsugæsluna á Hólmavík til skoðunar. Um minniháttar meiðsl var að ræða. Bifreiðin óökuhæf og flutt af vettvangi með krana. Síðara óhappið var útafakstur á Súgandafjarðarvegi, þar hafnaði bifreið út fyrir veg. Talsverðar skemmdir á bifreiðinni. Ekki slys á fólki, bifreiðin óökuhæf.
Skemmtanahald um liðna helgi í umdæminu fór nokkuð vel fram og án teljandi afskipta lögreglu.