Vetrarsólstöður - Hvít jól.
Hér á Ströndum er nokkuð öruggt að verði hvít jól. Dálítill snjór er á jörð þótt hiti fari yfir frostmark hluta úr degi nær það ekki til að snjór hverfi,eikur bara svellin og hálkuna en nóg er af henni fyrir. Samkvæmt veðurspá fram í tímann verður nokkuð umhleypingasamt fram til jóla og yfir sjálf jólin. Annars er veðurspáin þessi frá Veðurstofu Íslands: Strandir og Norðurland vestra í dag og á morgun:
Sunnan 3-8 og þurrt. Gengur í austan 10-15 með snjókomu eftir hádegi. Slydda eða rigning og hlánar um kvöldið. Vestan 15-23 í nótt, lægir á morgun. Veðurhorfur næstu daga: Á föstudag (Þorláksmessa):
Vestan og suðvestan 8-15 m/s og él, en léttir til A-lands. Vaxandi sunnanátt með slyddu eða snjókomu S- og V-til um kvöldið. Frost yfirleitt 0 til 5 stig.
Á laugardag (aðfangadagur jóla):
Suðvestan 15-20 m/s og slydda eða rigning en norðvestlæg átt 13-18 og snjókoma NV- til. Heldur hægari suðvestlæg átt S- til síðdegis með éljum, einkum V-til, en norðvestan 10-15 og snjókoma norðanlands um kvöldið. Vægt frost.
Á sunnudag (jóladagur):
Suðvestanátt og él, en bjartviðri á NA- og A-landi. Frost 2 til 10 stig, mildast við suður ströndina.
Á mánudag (annar í jólum):
Suðvestanátt S- til og él, einkum við ströndina en N- læg átt N- til. Éljagangur NV- til en bjartviðri á NA- og A- landi. Hiti breytist lítið.
Á þriðjudag:
N- læg átt og bjartviðri, en dálítil él N- til. Kalt í veðri.