Vikan hjá Lögreglunni á Vestfjörðum 28.feb.til 7 mars.2011.
Lögreglan hvetur alla þá sem búa yfir upplýsingum eða grunsemdum um fíkniefnameðhöndlun um að koma þeim á framfæri. Það er hægt að gera í síma 450 3730 (upplýsingasími lögreglunnar á Vestfjörðum) eða í síma 800 5005 (talhólf lögreglu og tollgæslu á landsvísu varðandi fíkniefnaupplýsingar). Fullrar nafnleyndar er heitið.
Umferð í umdæminu var með rólegra móti í liðinni viku, þó voru tveir ökumenn stöðvaðir fyrir of harðan akstur, annar á Skutulsfjarðarbraut á Ísafirði, en hinn á Vestfjarðarvegi í Önundarfirði.
Fjögur umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglu í vikunni, þrjú á Ísafirði. Tvö minniháttar óhöpp og eitt með þeim hætti að bifreið hafnaði á húsi, hafði runnið aftur á bak. Í þessum tilfellum var ekki um mikið eignartjón að ræða og ekki slys á fólki. Þriðjudaginn 1. mars hafnaði pallbíll út af veginum um Ragnadalshlíð. Bifreiðin hafnaði upp fyrir veg og valt eina veltu. Ökumaður var fluttur með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Patreksfirði til skoðunar. Bifreiðin var óökuhæf og flutt af vettvangi með kranabíl. Aðstæður á vettvangi er þannig þar sem óhappið átti sér stað að, mjög bratt er niður hlíðina og ef bifreiðin hafði farið fram af, hefði getað orðið mjög alvarlegt slys. Hálka var á veginum.
Skemmtanahald í umdæminu um liðna helgi fór vel fram og án teljandi afskipta lögreglu.Segir í fréttatilkynningu frá lögreglu.