NNA 9 til 11 m snjóél skyggni 9 km frost 2.3 stig talsverður sjór,jörð smá snjóþekja.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma í nótt 3,3 mm,HÁ 1,6 ´LÁ -2,5 stig.
Ég fór í það í dag að skrifa jólakortin af því ég hafði tíma,ég skrifa um þrájtíu kort á eftir að frímerkja þaug geri það eftir kl 21 þegar ég er búin að senda veðrið.Það er ekkert sniðugt að gera þetta á síðustu stundu,ennfremur sendi ég nokkur á tölvunni eins og tildæmis á vefkort.is á þorláksmessu eða daginn fyrr.Hér í Litlu-Ávík er alltaf vaninn að opna jólakort ekki fyrr enn á aðfangadagskvöld og ég ólst upp við það,enn veit og heyrt um fólk sem opna kortin sín strax og þaug koma inn um lúguna,ég mundi ekki kunna við þann sið.
Hefðmundin dagur hjá mér á mánudögum annað en veðurathugun fimm sinnum á dag og matseld fyrir hádegið er póstferð fyrir kl 1400 þá sækji póst í Bæ í Trékyllisvík og þá er pósturinn komin frá Norðurfirði í Bæ,síðan fer ég með póstinn út á Gjögurflugvöll og meðan ég bíð eftir flugvélinni fer ég neðrí vitann(Gjögurvita)sem ég lít eftir allt í lagi þar í dag enda stutt síðan ég skipti um perur.Flug var á réttum tíma í dag fór þá á ný í Bæ með póstin,pósturin lesin í sundur og ég dreyfi á bæina frá Bæ og til Litlu-Ávíkur oftast komin heim um 1530 til 1600.
ANA 6 til 8 m alskýjað hiti 3.4 stig sjólítið.Jörð rétt aðeins flekkótt og frosin. Yfirlit frá kl 1800 í gær:HÁ 3,6 LÁ -0,1 stig úrkomulaust var í nótt.
Ég fór talsvert eftir hádegið út á Gjögur að skoða hvernig gengi hjá verktakanum vinna við sjóvarnargarð sem verið er að búa til þar fyrir neðan tvö hús þar,verkið ekki langt komið þannig að ég tek fréttamynd þar seinna fyrir moggan þegar komin er sæmilegt lag á varnargarðinn.
SV 13 til 15 m kviða 17 m ljéttskýjað hiti 3.2 stig sjólítið,úrkoma 0,1 mm,jörð aðeins flekkótt og frosin.Yfirlit frá kl 1800 í gær HÁ 6,6 LÁ 2,0 stig.Hefur verið kviðóttur í nótt og í morgun smá skúrir voru í gærkvöld eftir kl átta.