Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 14. janúar 2004

Gjögurviti logar og fleira.

Ég fór út í Gjögurvita í svarta éljum og skafrenning að athuga með vara rafmagnið nóg spenna og hann logar (blikkar).
Rafmagnslaust er ennþá og ekki er alveg vitað hvenar menn verða sendir með línunni enn ekki gjörlegt í dag vegna veðurs.Nú voru komnir 2 sólarhringir á hádegi og við heimamenn segjum núna annar í rafmagnsleysi og þryðji og svoleiðis.
Hér frá Litlu-Ávík er keirt inn á sjálfvirku símstöðina frá morgni og fram á nótt annars væri allur sími úti núna.
Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 14. janúar 2004

Veður kl 0900.

Norðnorðaustan 19 til 21 m/s snjóél skyggni 8 km frost 1 stig stórsjór.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma 0,3 mm HÁ 0,4 LÁ -1,3 stig.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 13. janúar 2004

Veður kl 1800.

Nornorðaustan 23 til 25 m/s snjókoma skyggni 6 km hiti o stig stórsjór.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:
Úrkoma 0,2 mm mældist ílla í dag í hvassviðrinu HÁ 0,6 LÁ -3,0 stig.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 13. janúar 2004

Rafmagnsleysi.

Rafmagnslaust er enn hér í Árneshreppi og ekki veit ég til þess að sé reint að athuga línuna í dag vegna veðurs.Mjög kalt er orðið í húsum sem hafa bara rafmagnskyndingu eins og í mínu húsi er hitastig komið neðrí 6 til 7 stig og vill til að lítið frost er úti enn vindkæling gífurleg í hvassviðrinu.Ég er nú svo heppin að geta farið til Sigursteins bróðir og var þar í nótt og verð þar í nótt,enn þar er hitað upp með eldivið líka og rafstöð enn hún þolir ekki að hita upp ofna hjá mér.Það er það kalt orðið í mínu húsi að erfitt er að nota penna nema að hita hann upp með höndum til að geta skrifað í veðurbók.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 13. janúar 2004

Veður kl 0900.

Norðan 23 til 25 m/s snjókoma skyggni 0,5 km frost 3 stig stórsjór.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma 1 mm HÁ -1,5 LÁ -3,5 stig.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 12. janúar 2004

Flugi á Gjögur aflýst.

Áætlunarflugi var aflýst í dag á Gjögur vegna veðurs enda vitlaust veður snjókoma og hvassviðri.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 12. janúar 2004

Veður kl 1800.

Norðan 18 til 19 m/s snjókoma skyggni 10 km frost 2 stig mikill sjór.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Úrkoma 2 mm HÁ 1,0 LÁ -2,4 stig.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 12. janúar 2004

Rafmagnslaust.

Rafmagn fór af Árneshreppi rétt um 12 á hádeigi í dag ekki er vitað hvar bilun er.Margir hér í sveit eru með heimilisrafstöðvar ef veiturafmagn fer af.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 12. janúar 2004

Veður kl 0900.

Norðan 15 til 16 m/s frostrigning skyggni 11 km frost 1 stig mikill sjór.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma 2 mm HÁ 0,3 LÁ -1,6 stig.
Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 11. janúar 2004

Frétt á BB um saumaklúbb.

 Bæjarins Besta er búið að setja frétt um saumaklúbba í Árneshreppi á netið á www.bb.is

Atburðir

« 2025 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Úr myndasafni

  • Borgarísjaki ca 12 km NNA af Litlu-Ávík og ca 6 km A af Sæluskeri.
  • Íshrafl í Ávíkinni 18-12-2010.
  • Húsið fellt.
  • Júlíana Lind Guðlaugsdóttir í flotgalla í Norðurfjarðarhöfn.Mynd 20-12-2013.
Vefumsjón