Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 29. desember 2003

Ekkert flug í dag.

Flugi var aflýst um tvöleytið í dag þá var komin bullandi snjókoma hér,þetta átti að vera fyrsta flug á Gjögur eftir jól og mikið af því fólki að fara aftur suður sem kom fyrir jól það spáir betra veðri á morgun.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 29. desember 2003

Veður kl 0900.

Austnorðaustan 8 til 9 m/s alskýjað skyggni 30 km frost 4,5 stig dálítill sjór,jörð talsverðir skaflar.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma 0,3 mm HÁ -4,0 LÁ -5,0.
Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 28. desember 2003

Veður kl 1800.

Austnorðaustan 8 til 9 m/s snjóél skyggni 20 km frost 4,7 stig talsverður sjór.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Úrkoman var 1 mm HÁ -4,0 LÁ -5,8 stig.
Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 28. desember 2003

Félagsvist var í gærkvöld.

Ég fór á félagsvist sem haldin var í gærkvöld í félagsheimilinu Trékyllisvík allgóð þáttaka var þetta var ágætis tilbreyting að hitta sveitunga enn annars hefur ekkert verið farið um jóladagana.
Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 28. desember 2003

Veður kl 0900.

Norðnorðaustan 9 til 10 m/s skýjað skyggni 22 km frost 5,1 stig talsverður sjór.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma 0,9 mm HÁ -3,9 LÁ -6,4 stig.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 27. desember 2003

Veður kl 1800.

Norðan 9 m/s skýjað skyggni 30 km frost 4,1 stig talsverður sjór.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Úrkoman var 1 mm HÁ -3,0 LÁ -5,1 stig.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 27. desember 2003

Jólamessu var aflýst í gær.

Jólamessu var aflýst í gær vegna ófærðar,enn Árneskirkju er nú þjónað frá Hólmavík af sóknarprestinum þar séra Sigríði Óladóttur.
Enn ófært var orðið aftur eftir mokstur á þorláksmessu.Nú eru og hafa verið mjög dimm él.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 27. desember 2003

Veður kl 0900.

Norðan 10 til 11 m/s snjóél skyggni 12 km frost 3,6 stig allmikill sjór jörð talsverðar snjóþiljur með mismunandi snjódýpt.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma 0,5 mm HÁ +3,6 LÁ -4,1 stig.
Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 26. desember 2003

Veður kl 2100.

Norðaustan 13 til 15 m/s alskýjað skyggni 25 km hiti 0,5 stig allmikill sjór.
Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 26. desember 2003

Gleðilega Hátíð,og beðið afsökunar á bilun.

Gott kvöld góðir lesendur,ég bið afsökunar á þessari bilun í umsjónarkerfi Snerpu þar sem ég fer inn til að skrifa á heimasíðuna,ég vil þakka Snerpu fyrir góða þjónustu að laga þetta á annan dag jóla eftir að fréttist af bilun í kerfinu enn ég ætlaði að senda veður á síðunni sem venjulega þótt jóladagar væru enn ég sendi þá bara veðurlýsingu frá kl 21 í kvöld hér á eftir.

Atburðir

« 2024 »
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Úr myndasafni

  • Úr sal Gestir.
  • Unnið í þaki 24-11-08.
  • Oddný Þórðardóttir,oddviti Árneshrepps á skrifstofu sinni.Oddviti Árneshrepps frá 2006 til 2014.
  • Gunnsteinn og Hilmar.
  • Séð yfir Trékyllisvík og til Norðurfjarðar af Reykjaneshyrnu.Mynd Jóhann.
Vefumsjón