Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 12. desember 2003

Snjómokstur.

Það var hlægilegur snjómokstur hér innan sveitar í gærkvöld ca á milli 18.00 og 20.00 þá var mokaðar Urðirnar sem eru norðan við Mela og til Norðurfjarðar,enn það sem mér finnst hlægilegt við þennan mokstur er tímasetningin,það er flug löngu búið og flutningar með vörur og farþega og lokað útibú Kaupfélags eftir kl sex,enn grjót var í urðunum og snjór,enn að láta bíla í allan gærdag fara yfir þetta ,öðvitað hefði átt að moka þetta strax í gærmorgun.Enn ég hafði samband við Jón Hörð hjá vegagerðinni á Hólmavík í morgun og hann sagði mér að það væri verið að opna vegin milli Árneshrepps og Bjarnafjarðar norðan frá mest væri að moka á Veiðileysuhálsi enn opnað hefur verið tvisvar í víku í haust og sem af er vedri án lítilla undantekninga.
Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 12. desember 2003

Veður kl 0900.

SSW 11 til 13 m/s mesti vindur 15 m/s skýjað hiti 2,8 stig talsverður sjór jörð=dálitlar snjóþiljur.Yfirlit frá kl 1800 í gær:HÁ 2,9 LÁ -3,3 stig úrkomu varð ekki vart í nótt,talsvert hefur skafið snjó í nótt og morgun eftir að hvessti.
Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 11. desember 2003

Veður kl 1800.

SV 5 til 6 m alskýjað frost 3,0 stig dálítill sjór
Yfirlit frá kl 0900:HÁ -2,7 LÁ -5,7 stig ekki varð úrkomu vart í dag í Litlu-Ávík.
Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 11. desember 2003

Útiljósasería sett og póstferð.

Möggustaur komin með jólaseríu.
Möggustaur komin með jólaseríu.
Það var nú fínt veður fyrir hádegið að setja upp útiljósaseríu sem ég set á rekaviðarstaur sem ég setti upp fyrir mörgum árum,þessi rekastaur er sérstakur með næstum hring á endanum og lokaður um fimm metra hár enn hringurinn gerir það að verkum að gott er að hafa taug þar í og draga seríuna upp í gegnum augað,sjá mynd hér á eftir.
Síðar í dag var póstferð hjá mér eins og vanalega á fimmtudögum góð færð var.
Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 11. desember 2003

Veður kl 0900.

SV 4 til 5 m skýjað frost -3.6 stig dálítill sjór jörð dálítil lausamjöll.Yfirlit frá kl 1800 í gær:HÁ -3,4 LÁ -8.7 úrkoma 2,6 mm.
Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 10. desember 2003

Veður kl 1800.

SA 2 til 6 m snjókoma skyggni 4 km frost 5.1 stig talsverður sjór.Yfirlit frá kl 0900:Úrkoma 1,3 mm HÁ -2.0 LÁ -5,3 stig.
Talsvert meyri snjókoma var í dag á Norðurfirði um miðjan dagin þegar ég var þar á ferð enn lítil hér á veðurathugunarstað enn jókst hér talsvert fyrir kl 1800 og í næstum logni.
Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 10. desember 2003

Veður kl 0900.

NNA 9 til 11 m snjóél skyggni 9 km frost 2.3 stig talsverður sjór,jörð smá snjóþekja.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma í nótt 3,3 mm,HÁ 1,6 ´LÁ -2,5 stig.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 9. desember 2003

Jólakort skrifuð.

Ég fór í það í dag að skrifa jólakortin af því ég hafði tíma,ég skrifa um þrájtíu kort á eftir að frímerkja þaug geri það eftir kl 21 þegar ég er búin að senda veðrið.Það er ekkert sniðugt að gera þetta á síðustu stundu,ennfremur sendi ég nokkur á tölvunni eins og tildæmis á vefkort.is á þorláksmessu eða daginn fyrr.Hér í Litlu-Ávík er alltaf vaninn að opna jólakort ekki fyrr enn á aðfangadagskvöld og ég ólst upp við það,enn veit og heyrt um fólk sem opna kortin sín strax og þaug koma inn um lúguna,ég mundi ekki kunna við þann sið.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 9. desember 2003

Veður kl 1800.

N 13 til 14 m snjókoma skyggni 4 km hiti 0,3 stig,allmikill sjór.
Yfirlit frá kl 0900 í morgun HÁ 2,8 LÁ -0,2 stig úrkoma 1,5 mm.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 9. desember 2003

Veður kl 0900.

NNA 12 til 13 m slydda skyggni 8 km hiti 1,6 stig talsverður sjór.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma 7,1mm HÁ 3,5 LÁ 1,5 stig,jörð rétt aðeins flekkót.

Atburðir

« 2025 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Úr myndasafni

  • Ásdís Thoroddsen bílstjóri og fararstjóri ásamt 11 erlendum ferðamönnum og Sigursteini í Litlu-Ávík.07-07-2011.
  • Þessi eining komin á sinn stað.27-10-08.
  • Húsið fellt.
  • Björn og Gunnsteinn.
  • Séð til Gjögurs af Reykjaneshyrnu.Reykjanesrimar.
Vefumsjón