Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 21. febrúar 2005

Flug á Gjögur.

Flugið á Gjögur var á áætlun og póstur kom með og frægt,farþegar komu og fóru.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 21. febrúar 2005

Veðrið kl 0900.

Sunnan 2 m/s hálfskýjað skyggni 65 km gráð hiti 8,7 stig.
Yfirlit frá kl 1800 í gær:HÁ 10,5 stig LÁ 7,3 stig
úrkoma engin.Jörð flekkótt.
Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 20. febrúar 2005

Veðrið kl 1800.Góa byrjar.

Suðvestan 12 til 14 m/s hálfskýjað skyggni 60 km sjólítið hiti 9,5 stig.
Yfirlit frá kl 0900 í morgun:HÁ 10.5 stig LÁ 6,5 stig úrkoma engin.
Þetta hefur verið allgóður hiti í dag miðað við árstíma.
Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 20. febrúar 2005

Veðrið kl 0900.Konudagur.

Suðvestan 10 til 12 m/s léttskýjað skyggni 40 km sjólítið hiti 7,4 stig.
Yfirlit frá kl 1800 í gær:HÁ 9,0 stig LÁ 5,0 stig úrkoma engin.Jörð flekkótt.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 19. febrúar 2005

Þorraafmælisblót Gulla.

Edda Júlíana og Gulli.
Edda Júlíana og Gulli.
Guðlaugur Ágústsson hélt upp á fertugsafmæli sitt í gærkveldi,en veislunni var frestað í viku vegna flensu sem hefur gengið í hreppnum.
Afmælisveislan var sérstök á þann hátt að þorramatur var á boðstólum enda þorri senn búin.Sjö ár eru síðan að þorrablót var haldið hér í hreppnum.Margt aðkomumanna kom að sunnan því ágætis færð er norður enn fjórir komu á snjósleðum og höfðu þetta sem sportferð í leiðinni.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 19. febrúar 2005

Veðrið kl 1800.

Suðsuðvestan 9 til 10 m/s skýjað skyggni 35 km sjólítið hiti 5,0 stig.
Yfirlit frá kl 0900 í morgun:HÁ 5,1 stig LÁ 0,6 stig úrkoma 0,3 mm.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 19. febrúar 2005

Veðrið kl 0900.Þorraþræll.

Breytileg vindátt 1 m/s alskýjað skyggni 35 km gráð hiti 1,1 stig.
Yfirlit frá kl 1800 í gær:HÁ 2,0 stig LÁ -4,5 stig úrkoma engin.Jörð alhvít.
Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 18. febrúar 2005

Veðrið kl 1800.

Vestan 5 m/s léttskýjað skyggni 70 km sjólítið frost 2,0 stig.
Yfirlit frá kl 0900 í morgun:HÁ -1,0 stig LÁ -6,1 stig úrkoma engin.
Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 18. febrúar 2005

Póstflug á Gjögur.

Þá er búið að fljúga með póstin sem vantaði í gær í áætlunarfluginu.Pósturinn kom með kennsluvél frá Flugskólanum lítilli vél.
Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 18. febrúar 2005

Veðrið kl 0900.

Suðvestan 5 m/s léttskýjað skyggni 50 km sjólítið frost 5,2 stig.
Yfirlit frá kl 1800 í gær:HÁ -0,6 stig LÁ -5,6 stig úrkoma engin.Jörð alhvít.

Atburðir

« 2024 »
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Úr myndasafni

  • Kristján Kristjánsson tengir í töflu.12-12-2008.
  • Hræran losuð.06-09-08.
  • Aðventuljós í glugga.18-12-2008.
  • Gunnsteinn Gíslason og Ólafur Thorarensen.
Vefumsjón