Veður kl 1800.
Norðan 15 til 16 m/s snjóél skygni 8 km hiti 0 stig allmikill sjór.Yfirlit frá kl 0900:Úrkoma 2 mm HÁ 2 stig LÁ -0 stig.
Jóhann Ólafsson hefur komið hingað norður í Árneshrepp í 25 ár frá Reykjavík til að gera skattframtöl hreppsbúa.Það hefur margt breist síðan hann byrjaði fólki fækkað og bændur oft með grásleppuútgerð og meiri útgerð eins og frá Gjögri.Að sögn Jóhanns var hann oft um þrjár vikur að fara um og gera skýslur fyrstu árin enn nú svona 10 daga.Það hlítur að teljast sérstakt að koma að sunnan í 25 ár að gera skattframtöl í einu sveitarfélagi.Jóhanns eða Skatta Jóa eins og við köllum hann,verður saknað á næsta ári.Jóhann kláraði skattframtöl þessa árs fyrir páska.Ég sendi frétt á prentaða útgáfu MBL í gær sem byrtist í blaðinu í dag.