Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 29. janúar 2004

Veður kl 1800.

Norðan 19 til 21 m/s snjóél skyggni 0,5 km frost 6 stig mikill sjór.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Úrkoma 0,8 mm HÁ -5 stig LÁ -8 stig.
Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 29. janúar 2004

Flugi aflíst á Gjögur.

Íslandsflug varð að aflísa flugi á Gjögur í dag vegna veðurs.Ég fór með póstinn út á flugvöll svarta él alltaf og sást ekki milli stika á veginum og varð oft að stoppa í 5 til 10 mínútur á leiðinni.Mér skilst að ekki verði reynt flug á morgun þótt veður leifði ekki fyrr enn á laugardag vegna þess að Íslandsflug hefur núna bara eina vél í innanlandsflugið eftir að vél bilaði fyrir austan í gær.
Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 29. janúar 2004

Veður kl 0900.

Norðan 15 til 17 m/s skýjað skyggni 28 km frost 5 stig talsverður sjór.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Engin úrkoma var HÁ 2 stig LÁ -5 stig.
Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 28. janúar 2004

Veður kl 1800.

Norðvestan 3 m/s léttskýjað skyggni 50 km hiti 2 stig sjólítið.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Engin úrkoma var Há 3 stig LÁ 0 stig.
Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 28. janúar 2004

Enn hvalreki í Árneshreppi.

Kannski er þetta Andanefjukálfur.26-01-2004.
Kannski er þetta Andanefjukálfur.26-01-2004.
Um síðustu helgi fannst rekið eitthvert dýr í Norðurfirði fyrir neðan Steinstún eða við síkið.Þetta er talið vera kálfur einhvers hvalategundar jafnvel Andanefju dýrið er þrír og hálfur meter að lengd.Ég læt mynd fylgja með þótt sjáist ílla í þaranum.
Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 28. janúar 2004

Veður kl 0900.

Suðaustan 8 til 9 m/s léttskýjað skyggni 50 km hiti við frostmark dálítill sjór.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkomu varð vart enn mældist ekki HÁ 2 stig LÁ -3 stig.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 27. janúar 2004

Veður kl 1800.

Austsuðaustan 3 m/s skýjað skyggni 35 km frost 0 stig sjólítið.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Engin úrkoma var HÁ 3 stig LÁ -4 stig.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 27. janúar 2004

Sjónvarp.

Ég fékk mér nýtt sjónvarp sem kom í gær með fluginu því mig langaði í fullkomnara tæki svo sem með textavarpi.Guðlaugur Ágústsson tengdi það með mér í gærkvöld enn fengum ekki nógu góða mynd,aftur var farið yfir leiðbeiningar í morgun og haft samband við umboðið enn ekkert gekk,þannig að ég á að senda tækið aftur suður í umboðið Sjónvarpsmiðstöðina með fluginu á fimmtudag.Þetta sýnir hvað allt er dýrara og verra við að eiga út á landi.Gamla tækið er í góðu lagi.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 27. janúar 2004

Veður kl 0900.

Austsuðaustan 4 m/s léttskýjað skyggni 40 km frost 2 stig dálítill sjór.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Engin úrkoma var HÁ + 3 stig LÁ -5 stig.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 26. janúar 2004

Póstferð og fleira.

Póstferð var hjá mér í dag og flug á réttum tíma um 1435.Mokað var frá Norðurfirði og í Trékyllisvík og frá Gjögri og fram í vík lítið á þeirri leið.Var með mann seinnipartin að hjálpa mér að skifta um sjónvarpskapal hjá mér.

Atburðir

« 2025 »
« September »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Frá brunanum 16-06-2008.
  • Agnes komin uppundir Hjallskerin í Ávíkinni.
Vefumsjón