Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 23. desember 2003

Aukaflug kom í dag seinnipartinn,með frægt og póst.

Eftir allskonar vændræði með veður í dag svo sem slyddu og slæms skygnis og ísíngu í lofti og hvassviðri lenti flugvél Íslandsflugs um kl 1600 í dag svo hvasst var að flugmenn sáu sér ekki fært að keyra vélina ínn á flughlað vegna hliðarvinds heldur varð að afgreyða vélina út á flugbraut og setja þar allt inn í bíla og keyra með upp að afgreiðslu mesta furða að ekkert fauk út í veður og vind,enn allt tókst vel og allur jólapóstur er nú komin til sinna eiganda og pakkar og aðrar vörur.Á leyðinni heim lenti ég í svarta éli og þurfti að vera með hausin út um gluggan til að sjá vegkant og framfyrir bílinn.Nú í þessum skrifuðu orðum er ég að hlusta á jólakveðjur sem fluttar eru í Rúv á rás eitt,þá finnst mér jólin komin.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 23. desember 2003

Veður kl 1800.

Suðvestan 16 til 19 m/s snjóél skyggni 4,0 km hiti 1,0 stig dálítill sjór.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Úrkoma 11 mm HÁ +6,0 LÁ +0,6 stig .Það var mjög hvass og upp í rok í dag eftir að snérist SW.
Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 23. desember 2003

Veður kl 0900.Þorláksmessa.

Austnorðaustan 8 til 9 m/s slydda skyggni 2,5 km hiti 1,2 stig sjólítið jörð dáítið snjólag misþykkt.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma 6 mm HÁ +3,4 LÁ +1,0 stig.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 22. desember 2003

Veður kl 1800.

Vestan 2 m/s alskýjað skyggni 28 km hiti 2,1 stig sjólítið.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Engin úrkoma var HÁ +2,2 LÁ +0,5 stig.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 22. desember 2003

Áætlunarflug.

Ég fór eins og venjulega með póstin á Gjögurlugvöll enn það kom engin póstur að sunnan með flugvélinni né frægt þar á meðal mjólkurvörur í kaupfélagið og fleyri vörur.Það varð að skilja allt eftir því vélin var full af farþegum og farangri fólksins,enn aukaflug verður í kvöld eða morgun þannig að það rætist úr þessu vonandi.Enn allur jólapóstur er farin héðan úr hreppnum þá.
Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 22. desember 2003

Veður kl 0900.Vetrarsólstöður

Sunnan 1m/s úrkoma í grend skyggni 18 km hiti 1,0 stig sjólítið jörð dálitlar snjóþyljur.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoman var 3,0 mm HÁ +1,1 LÁ -5,1.Dálítið snjóaði í nótt og fram á morgun.
Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 21. desember 2003

Veður kl 1800.

Sunnan 8 til 10 m/s alskýjað skyggni 40 km frost 5,0 stig sjólítið.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Ekki varð vart úrkomu HÁ -2,5 LÁ -6,0 stig.
Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 21. desember 2003

Veður kl 0900.Skemmstur sólargangur.

Suðvestan 10 til 12 m/s alskýjað skyggni 35 km frost 5,8 stig dálítill sjór jörð dálitlar þyljur.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Engin úrkoma mældist HÁ -4,1 LÁ -6,9 stig.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 20. desember 2003

Unnið í eldivið.

Ég hef verið í mestallan dag að saga í eldin og koma honum inn í kjallara þar sem spítnaketillin er hjá bróðir mínum enn hann kyndir sitt hús mikið með spítum,hann hefur verið að saga að undanförnu þegar tími er í brettakubba og umbúðalista sem hann selur í sumar þá kemur mikið af afgöngum og afsögum sem er nítt í eldin og allt sag líka.Ég sé yfirleitt um eldiviðin og allt er nýtt sem hægt er.Ég tek fram að ég kyndi mitt hús með rafmagnskyndingu.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 20. desember 2003

Veður kl 1800.

Norðan 9 til 10 m/s skýjað skyggni 28 km frost 4,5 stig dálítill sjór.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Úrkoman 0,1 mm HÁ -2,6 LÁ -4,6 stig.

Atburðir

« 2023 »
« Júní »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30  

Úr myndasafni

  • Borgarísjakinn við Lambanes 30-09-2017.
  • Gjögurviti-byggður 1921 hæð 24 m.-2001.
  • Þessi eining komin á sinn stað.27-10-08.
  • Skip á Norðurfirði.30-04-2006.
  • Bær í Trékyllisvík-19-08-2004.
Vefumsjón