Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 28. desember 2003

Veður kl 1800.

Austnorðaustan 8 til 9 m/s snjóél skyggni 20 km frost 4,7 stig talsverður sjór.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Úrkoman var 1 mm HÁ -4,0 LÁ -5,8 stig.
Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 28. desember 2003

Félagsvist var í gærkvöld.

Ég fór á félagsvist sem haldin var í gærkvöld í félagsheimilinu Trékyllisvík allgóð þáttaka var þetta var ágætis tilbreyting að hitta sveitunga enn annars hefur ekkert verið farið um jóladagana.
Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 28. desember 2003

Veður kl 0900.

Norðnorðaustan 9 til 10 m/s skýjað skyggni 22 km frost 5,1 stig talsverður sjór.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma 0,9 mm HÁ -3,9 LÁ -6,4 stig.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 27. desember 2003

Veður kl 1800.

Norðan 9 m/s skýjað skyggni 30 km frost 4,1 stig talsverður sjór.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Úrkoman var 1 mm HÁ -3,0 LÁ -5,1 stig.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 27. desember 2003

Jólamessu var aflýst í gær.

Jólamessu var aflýst í gær vegna ófærðar,enn Árneskirkju er nú þjónað frá Hólmavík af sóknarprestinum þar séra Sigríði Óladóttur.
Enn ófært var orðið aftur eftir mokstur á þorláksmessu.Nú eru og hafa verið mjög dimm él.
Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 27. desember 2003

Veður kl 0900.

Norðan 10 til 11 m/s snjóél skyggni 12 km frost 3,6 stig allmikill sjór jörð talsverðar snjóþiljur með mismunandi snjódýpt.Yfirlit frá kl 1800 í gær:Úrkoma 0,5 mm HÁ +3,6 LÁ -4,1 stig.
Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 26. desember 2003

Veður kl 2100.

Norðaustan 13 til 15 m/s alskýjað skyggni 25 km hiti 0,5 stig allmikill sjór.
Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 26. desember 2003

Gleðilega Hátíð,og beðið afsökunar á bilun.

Gott kvöld góðir lesendur,ég bið afsökunar á þessari bilun í umsjónarkerfi Snerpu þar sem ég fer inn til að skrifa á heimasíðuna,ég vil þakka Snerpu fyrir góða þjónustu að laga þetta á annan dag jóla eftir að fréttist af bilun í kerfinu enn ég ætlaði að senda veður á síðunni sem venjulega þótt jóladagar væru enn ég sendi þá bara veðurlýsingu frá kl 21 í kvöld hér á eftir.
Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 24. desember 2003

Veður kl 1800.

Austnorðaustan 9 til 11 m/s skafrenningur skyggni 25 km frost 0.3 stig allmikill sjór.Yfirlit frá kl 0900 í morgun:Úrkoma 0,9 mm HÁ +1,4 LÁ -1,2 stig.
Talsverð frosrigning var um hádegið í dag,öll hús mjög síluð að utan.
Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 24. desember 2003

Gleðileg jól.

Jæja þá er komin aðfangadagur jóla,um leið og ég óska ykkur gleðlegra jóla þá vil ég þakka fyrir frábæra lesningu á síðunni minni og þakka ykkur lesendur góðir fyrir góða leiðsögn og ábendingar í tölvupósti.
Ég óska öllum lesendum heimasíðu minnar Gleðilegra jóla og hafið frábæra gleðilega jólahátíð. Besta jólakveðja.

Atburðir

« 2024 »
« Október »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Úr myndasafni

  • Skipið Suðri í hafís á austurleið.
  • Séð til Bergistanga og hafís,Reykjaneshyrna í baksýn.
  • Norðvestur veggur,vinnuljós inni að kvöldi 27-10-08.
  • Lagðar lagnir í grunn.24-09-08.
  • Þakjárn komið á mikið til á bílskúr,22-11-08.
Vefumsjón