Vikan hjá lögreglunni á Vestfjörðum,9. til 16. desember 2013.
Meira
Elsti „ungi“ rithöfundur landsins með sína fyrstu bók. Út er komin hjá Óðinsauga unglingaspennusagan Lífsháski eftir Halldór Svavarsson. Þetta er fyrsta bók höfundar sem er á áttræðisaldri. Sagan segir af þremur systkinum sem fara í dálitla sjóferð sér til skemmtunar og sögusviðið er norðurströnd Íslands í svartasta skammdeginu. Bilaður viti, hafrannsóknarskip sem fær á sig brotsjó, hafís, hættuleg sker og endalaus vetrarnóttin gera ferðina að háskalegu ævintýri. Þessi saga af mannraunum, þrautseigju, kjarki og baráttu upp á líf og dauða heldur lesendum í heljargreipum frá fyrstu blaðsíðu. Þetta er bók fyrir hugrakka unglinga, skrifuð af höfundi sem þekkir af eigin reynslu hversu óvægin og viðsjárverð Norðurhöf geta verið. Höfundurinn, Halldór Svavarsson, er alinn upp í sjávarþorpi þar sem brimsorfnir sjávarhamrar voru leikvöllurinn. Þráður sögunnar er spunninn úr hans eigin reynslu af sjómennsku og mannraunum í samblandi við einstaka frásagnargáfu. Halldór Svavarsson er fæddur og uppalinn í Vestmannaeyjum á eftirstríðsárunum. Rétt eins og aðrir ungir menn fór hann til sjós og stofnaði fjölskyldu. Nótt eina þurfti hann að flýja ógnarkraft náttúruaflanna þegar eldur gaus úr iðrum jarðar, fjölskyldan missti heimili sitt og varð að byrja upp á nýtt á nýjum stað. Síðar varð Halldór virtur kaupmaður í Reykjavík. Hann hefur búið í Hafnarfirði um áratugaskeið, en tengslin við æskuhagana hafa aldrei rofnað. Hann hefur alla tíð skrifað og sagt sögur en aldrei fyrr gefið út skáldsögu.
„Skrifa þegar ég er ekki í barnaafmælum“
Gistiheimilið Bergistangi við Norðurfjörð er nú komin með heimasíðu. Hjónin Margrét Jónsdóttir og Gunnsteinn Gíslason reka gistiheimilið sem er rekið á tveimur stöðum,annarsvegar í heimahúsi þeirra á jarðhæð,þar sem eru leigð út tvö herbergi á jarðhæð ásamt eldunaraðstöðu. Hins vegar er gisting í gamla frystihúsinu,sem þau breyttu í gistaðstöðu fyrir nokkru í gistiheimili. Þar eru þrjú herbergi með kojum,stærsta herbergið er með átta kojur,eða samtals tuttugu kojur í þessum þrem herbergjum. Gott eldhús er í frystihúsinu,eins og það er nefnt í daglegutali,með öllum búnaði. Sjónvarp er á báðum stöðunum.
Heimasíða BergistangaHvað veist þú um Vestfirði er skemmtileg og fræðandi spurningabók fyrir alla fjölskylduna, þar sem finna má fjölda fjölbreyttra spurninga tengdum Vestfjörðum og vestfirðingum. Eyþór Jóvinsson samdi spurningarnar. Þetta er þriðja bók Eyþórs Jóvinssonar, en að baki á hann tvær ljósmyndabækur síðastliðin tvö ár. Hugmyndin að spurningabókinni kviknaði aðeins fyrir rétt um mánuði síðan, daginn eftir að Ísafjarðarbær keppti í Útsvari með eftirtektarverðum árangri. Því er óhætt að segja að það hafi verið hafðar hraðar hendur við að semja spurningar, setja upp og prenta. Aðeins 30 dagar frá hugmynd að útgáfu. Bókinni er fyrst og fremst ætlað að skemmta
Í liðinni viku voru þrír ökumenn kærðir fyrir of hraðan akstur í nágrenni Ísafjarðar. Þá voru þrjú umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglu, öll þriðjudaginn 3. des., um að ræða eitt minniháttar óhapp á Ísafirði, útafakstur og veltu í Hestfirði og útafakstur og veltu á Vestfjarðavegi í Reykhólasveit. Ökumaður bifreiðarinnar sem valt á Vestfjarðavegi var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur til skoðunar. Bifreiðarnar úr báðum veltunum voru óökuhæfar eftir óhappið. Á Ísafirði var einn ökumaður kærður fyrir grun um akstur undir áhrifum fíkniefna í liðinni viku. Aðfaranótt föstudagsins 5. des., hafði lögreglan afskipti af tveim ungum mönnum sem höfðu bundið band á milli bifreiðar og gúmíslöngu. Þeir höfðu gert sér að leik að draga hvor annan á slöngunni eftir götum Bolungarvíkur. Vart þarf að fjölyrða um þá hættu sem slíku hátterni fylgir.
Björgunarsveit fráMesta kuldanum er nú að ljúka,og er nú að draga mikið úr frosti í gær og núna með morgninum. Mesta frost á veðurstöðinni í Litlu-Ávík á Ströndum fór niður í -12,0 stig aðfararnótt föstudagsins 6 desember. Mesta frost sem mælst hefur í Litlu-Ávík mældist -14,2 stig þann fyrsta mars 1996. „Samkvæmt gögnum frá Trausta Jónssyni sem er í veðurfarsrannsóknum hjá Veðurstofu Íslands,hefur mesta frost mælst hér í Árneshreppi á mönnuðum veðurstöðvum mælst mest á Kjörvogi -18,9 stig þann 8-3-1969, tveim árum áður en stöðin hætti þar. Og á Gjögri mældist -17,1 stig á aðfangadag 24. desember 1975. Á Grænhól við Gjögur mældist mest frost -19,0 stig þann 27. Janúar 1923. Reyndar mældist mesta frost sem getið er um í Árneshreppi á Kjörvogi -20,0 stig í febrúar 1882,en þar var veðurfarsstöð,sem kölluð var,á vegum dönsku veðursstofunnar frá 1878 til 1883 sem aðallega sá um að athuga um hafís og hitastigs athuganir.“
Kór Átthagafélags Strandamanna heldur aðventuhátíð með líku sniði og undanfarin ár. Hátíðin verður að þessu sinni í Bústaðakirkju sunnudaginn 8. desember klukkan:16:30. Á hátíðinni mun Ágota Joó stjórna kórnum,en hún tók við kórstjórninni haustið 2012. Vilberg Viggósson leikur á píanó og Haraldur Hreinsson flytur hugvekju. Einsöngvari með kórnum að þessu sinni verður Gunnar Guðbjörnsson. Einnig mun sérstakur barnakór sem stofnaður var í tilefni aðventuhátíðarinnar syngja nokkur jólalög og setur barnakórinn alltaf skemmtilegan blæ á hátíðina. Í lok hátíðarinnar er gestum boðið á kaffihlaðborð sem kórfélagar sjá um.
Í liðinni viku voru þrír ökumenn stöðvaðir fyrir of hraðann akstur innan bæjar á Ísafirði, þar sem hámarkshraði er 35 km/klst. Einn ökumaður var stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og annar stöðvaður vegna gruns um ölvun við akstur. Fimmtudaginn 28. nóv., kom upp eldur í flutningabifreið sem ekið var um Þröskulda, þjóðveg 61, Djúpveg. Slökkvilið frá Hólmavík var kallað á vettvang ásamt lögreglu. Bifreiðin var alelda þegar slökkviliðið kom á vettvang og nokkuð greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins. Bifreiðin gjörónýt og færð af vettvangi með krana. Eldsupptök eru ókunn.
Enn og aftur vill lögregla kom á framfæri ábendingum