Sunnan 3 m/s léttskýjað skyggni 60 km dálítill sjór frost 4,6 stig. Yfirlit frá kl 1800 í gær:HÁ -1,4 stig LÁ -5,5 stig úrkoma engin.Jörð smá snjóföl og svellað.
Vestan 8 til 9 m/s hálfskýjað skyggni 35 km dálítill sjór frost 1,6 stig. Yfirlit frá kl 0900 í morgun:HÁ 0,6 stig LÁ -1,9 stig úrkoma 0,0 mm úrkomu varð vart enn mældist ekki.
Í gær hélt Kvennfélag Árneshrepps og nemendur ásamt starfsfólki Finnbogastaðaskóla Litlu-jólin í Félagsheimilini í Árnesi.Dagskráin hófst með borðhaldi hangiket og laufabrauð voru á matseðlinum og allt meðlæti sem því fylgir.Síðan voru nemendur og starfsfólk skólans með skemmtidagskrá meðal efnis var jólasaga söngur leikrit og listdans.Síðan var gengið í kringum jólatréið og ekki leið að löngu að tveir jólasveinar komu í heimsókn þeir félagar Gluggagæjir og Kjötkrókur við mikinn fögnuð yngsta fólksins
Suðsuðvestan 7 til 8 m/s hálfskýjað skyggni 50 km sjólítið frost 1,3 stig. Yfirlit frá kl 1800 í gær:HÁ -1,1 stig LÁ -8,0 stig úrkoma eingin.Jörð smásnjóföl og svellað.
Vegagerðin sendi veghefil norður í morgun að opna veginn enn lítill snjór var enn gífurleg svell og skóf hefillin vegin til Norðurfjarðar og til Munaðarness nyrsta bæ í byggð hér í hreppnum .Það eru ekki eins sleip svellin eftir það.Það kemur líka fram á síðu vegagerarinnar að vegurinn sé flugháll.
Suðaustan 2 m/s léttskýjað skyggni 60 km dálítill sjór frost 7,2 stig. Yfirlit frá kl 1800 í gær:HÁ -2,3 stig LÁ -8,6 stig úrkoma 0,1 mm.Jörð smá snjóföl og svellað.
Norðnorðvestan 10 til 12 m/s skýjað skyggni 25 km allmikill sjór frost 2,4 stig. Yfirlit frá kl 0900 í morgun:HÁ -0,4 stig LÁ -3,8 stig úrkoma 0,9 mm.Dimm él hafa verið í dag.
Mig langar að minnast á nýjan fréttavef á Ströndum sem á að vera fyrir alla sýsluna og ritstýrir Jón Jónsson á Kirkjubóli fréttavefnum og er einnig ábyrðamaður útgefandi er Sögusmiðjan. Slóðin er www.strandir.is þið komist líka á síðuna þar undir tenglar á minni síðu Strandir og Strandamenn það er sama slóðin.