Réttað í Kjósarrétt.
Einnig var leitað fjalllendið frá Búrfelli út Kjósarfoldir,með Háafelli,og til sjávar,að Kleifará.Féið var síðan rekið til Kjósarréttar og réttað þar.
Meira
Einnig var leitað fjalllendið frá Búrfelli út Kjósarfoldir,með Háafelli,og til sjávar,að Kleifará.Féið var síðan rekið til Kjósarréttar og réttað þar.
Eins og fram hefur komið hér á vefnum gerir;Veðurstofa Íslands nú vefstjórum kleift að birta án fyrirhafnar veðurupplýsingar á vefjum sínum. Þannig geta vefstjórar birt þau veðurkort sem nýtast best notendum viðkomandi vefs.
Þjónustan er ókeypis. Hún byggir á 'iframe'-tækninni. Í raun og veru birtist þá sérsniðin síða frá vedur.is inni í síðu viðkomandi vefs.
Útfærðir hafa verið tveir stórir iframe-rammar sem ætlað að vera meginefni heillar síðu. Fleiri iframe-rammar verða útfærðir ef margir óska eftir því.;
Litlihjalli er nú komin með þessa þjónustu á sinn vef,þið farið inná valmyndina Veðurspá hér til vinstri þá kemur yfirlitskort upp fyrir Strandir og norðurland vestra.
Til að sjá vindaspá,úrkomuspá og hitaspá farið þið inná Fleiri veðurspár.
Vefstjóri vonar að ykkur lesendum líki þetta vel,því margir fylgjast með veðrinu.
Mikið hvassviðri var frá því í gærkveldi og fram á morgun hér í hreppnum sem og annarsstaðar.
Ekki er vitað um neitt tjón hér í Árneshreppi nokkrir steinar ultu á vegi enda miklu minni úrkoma hér en annarsstaðar á Vestfjörðum.
Á veðurstöðinni í Litlu-Ávík mældist úrkoman tæpir 23 mm.
Vindur var frá hásuðri til suðsuðausturs,í síðasta veðurskeyti frá Litlu-Ávík kl 21.00 í gærkvöld var SSA 19 m/s og mestakviða 24 m/s.Nú í morgun kl 06.00 var SSA 20 m/s og mesta kviða 29 m/s.
Á sjáfvirku stöðinni á Gjögurflugvelli var mesti vindurin um miðja nótt.eða kl 03.00 voru S 29 m/s í jafnavind og mesta kviða 43 m/s,var það mesti vindur sem mældist þar í þessu veðri.Og kl 04.00 eru S 29 m/s og mesta kviða er þá 42 m/s,og fer þá að draga verulega úr vindi eftir það.
Það má segja að Árneshreppur hafi sloppið vel í þessu veðri þótt fólk hafi oft hrokkið upp í nótt í stormkviðunum.
Kvartett Camerata heldur útgáfutónleika nýs hljómdisks í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði laugardaginn 20. september kl. 20. Aðgangseyrir er kr. 1.000 og rennur óskiptur til styrktar Krabbameinsfélagi Tálknafjarðar og Vesturbyggðar. Fólk er hvatt til að mæta, hlusta á fallega tónlist og styrkja um leið málefni krabbameinssjúkra á suðursvæði Vestfjarðakjálkans.
Kvartett Camerata skipa systurnar Mariola og Elzbieta Kowalczyk, tónlistarkennarar í Vesturbyggð, Magnús Ólafs Hansson, verkefnastjóri í Vesturbyggð, og Steingrímur Þorgeirsson, sjúkraþjálfari á Ísafirði. Kvartettinn var stofnaður í Bolungarvík á vordögum 2001 og hefur komið fram bæði hérlendis og erlendis.
Á diskinum sem hér er fylgt úr hlaði syngur kvartettinn m.a. lög frá 16. og 17. öld, ættuð frá Rússlandi, Spáni og Póllandi, og nokkur yngri íslensk lög. Erlendu lögin sem mörg hver eru vel þekkt hérlendis hafa ekki áður verið gefin út á íslensku.
Nú í þessari viku var hafist handa við að gera við smábátabryggjuna á Norðurfirði.
Hrunið hafði úr hluta bryggjuþils alveg niður fyrir sjólínu.
Soðnir eru saman stálbitar og klætt á þá og þeim slakað niður og steypt í mótin.
Guðbrandur Torfason smiður sér um verkið ásamt þremur öðrum kafari er líka við vinnu við að koma mótunum niður fyrir sjólínu.
Guðbrandur Torfason er héðan úr sveit og;er sonur Torfa Guðbrandssonar fyrrum skólastjóra við Finnbogastaðaskóla;og er byggingarmeistari í Reykjavík.
Veðurstofa Íslands.
Veðurstofa Íslands gerir nú vefstjórum kleift að birta án fyrirhafnar veðurupplýsingar á vefjum sínum. Þannig geta vefstjórar birt þau veðurkort sem nýtast best notendum viðkomandi vefs.
Þjónustan er ókeypis. Hún byggir á 'iframe'-tækninni. Í raun og veru birtist þá sérsniðin síða frá vedur.is inni í síðu viðkomandi vefs.
Útfærðir hafa verið tveir stórir iframe-rammar sem ætlað að vera meginefni heillar síðu. Fleiri iframe-rammar verða útfærðir ef margir óska eftir því.
Þessi þjónusta er ekki síst ætluð héraðsfréttamiðlum, ferðaþjónustuvefjum og öðrum litlum og miðlungsstórum vefjum. Á þennan hátt geta vefir nú birt glöggar veðurupplýsingar án þess að þurfa vísa notendum af sínum vef.
Skoða nánari upplýsingar um iframe-þjónustuna
Frétt og mynd af www.vedur.is
Leitarmenn fengu mjög gott veður fyrri dagin en seinni daginn var rigning um tíma en hægviðri,þurrt og bjartviðri þegar réttað var og dregið.
Björn Torfason leitarstjóri segir;að smalast hafi vel og fé sé mjög vænt,enda sé fallþúngi dilka mjög góður sem búið er að slátra úr hreppnum eftir heimasmalanir eða frá 16 og yfir 17 kg í meðaltal það lofi mjög góðu með framhaldið;
Það má geta þess að hafa birt Fjallskilaseðilinn í heild sinni fyrir Árneshrepp hér á vefnum virðist vinsælt efni til skoðunar hjá lesendum.
Sennilega hefur heildar Fjallskilaseðill fyrir sveitarfélag aldrei verið birtur fyrr í netfjöðlmiðli.
Vika símenntunar verður í níunda sinn 22.-28. september 2008. Markmið viku símenntunar er að auka símenntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Í viku símenntunar 2008 er lögð áhersla á fræðslu í fyrirtækjum og sem fyrr að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun.
Fræðsluskrifstofa Vestfjarða í samvinnu við fleiri aðila mun heimsækja fyrirtæki og stofnanir á Vestfjörðum og kynna starfsemi sína.
Menningarráð Vestfjarða óskar eftir umsóknum
Nú hefur verið auglýst eftir umsóknum í seinni úthlutun Menningarráðs
Vestfjarða árið 2008. Umsóknarblöð má nálgast á vef Menningarráðsins
http://www.vestfirskmenning.is/ undir tenglinum Styrkir og þar er einnig að finna
leiðbeiningar fyrir umsækjendum og úthlutunarreglur. Umsóknarfrestur er til
föstudagsins 3. október.