Vegagerðin hefur verið að láta hefla vegina hér í Árneshreppi og verða næstum búnir í dag enn aðeins eftir inn með Reykjarfirði sem verður klárað eftir helgina. Erfitt hefur verið að eiga við heflun vegna þurka og þurft að bleyta mikið. Það hafa verið þeir félagar hjá Vegagerðinni á Hólmavík ,Ágúst Guðjónsson á vatnsbílnum(sjóbílnum)sem bleytir fyrir heflun og Ásgeir Sigurgeirsson á vegheflinum sem hafa verið við þessa vinnu.
Fyrstu rollur(ær) áttu talið hér í Litlu-Ávík hjá Sigursteini Sveinbjörnssyni bónda 10 þessa mánaðar og voru það rollur sem voru sæddar,enn það var eingin af þeim sem áttu lamb í dag heldur bar lambgimbur fyrir tal einu gimrarlambi í dag.Þessi lambgimbur átti ekki að bera fyrr enn á Hvítasunnudag í fyrstalagi þannig að hún bar fyrir tal sem kallað er. Sauðburður er svo að byrja að fullu upp úr Hvítasunnu.